Venjulegt letur Stórt letur Mjög stórt letur
.

Nýjustu fréttir Minimize
19. febrúar 2012
Þorramót Fjarðar í boccia
Þorramót Fjarðar í boccia Bocciafólk Fjarðar sýndi gestum sínum, bæjarstjórnum Hafnarfja...
18. febrúar 2012
Fríður hópur í víking til Malmö
Fríður hópur í víking til Malmö Við fyrsta hanagal fimmtudaginn 9. febrúar var hópur 12 sundmanna mættur &aa...
13. febrúar 2012
Aníta bætti tæplega 13 ára gamalt Íslandsmet í 200 m. fjórsundi
Aníta bætti tæplega 13 ára gamalt Íslandsmet í 200 m. fjórsundi Aníta Ósk Hrafnsdóttir setti nýtt Íslandsmet í 200 metra f...
Tenglar Minimize
Fréttir Minimize

Fréttir

8. janúar 2012
Sjómannabikarinn enn í Hafnarfirði
Sjómannabikarinn enn í Hafnarfirði
Kolbrún Alda Stefánsdóttir handhafi Sjómannabikarsins 2011 var ekki í nokkrum vandræðum með að verja bikarinn milli ára, og landaði bikarnum í 50 metra bringusundi á tímanum 42.31 sekúndu sem færði henni 764 stig.  Kolbrún átti einnig annað stigahæsta sundið á mótinu, en það var í 50 metra skriðsundi á tímanum 42.31 sek.  Fyrir það fékk hún 726 stig.  Árangur Kolbrúnar er sérlega glæsilegur í ljósi þess að Nýársmótið hefur ekki unnist með fleiri stigum frá árinu 2001.  
  En Kolbrún var aldeilis ekki ein um að gera góða hluti í lauginni, langflestir félagsmenn Fjarðar voru að bæta tímana sína, og sumir jafnvel verulega.  Þá er vert að vekja athygli á því að í öllum 8 greinunum þar sem keppt var til verðlauna á mótinu var Fjarðarfólk í efsta sæti.
  Nýársmótið er þó í hugum margra fyrst og fremst vetvangur ungra og efnilegra sundmanna til að taka sín fyrstu skref á móti, og gaman að sjá hversu margir nýliðar eru að koma upp úr ungliðastarfi félaganna.  
  Allt stefndi í metþátttöku á mótinu, eða um 100 einstaklinga, sem er frábært þar sem á 
Nýársmóti keppa aðeins þeir sem verða 17 ára á árinu eða yngri.  En því miður voru félagar Óðins á Akureyri veðurtepptir og komust ekki til Reykjavíkur í tæka tíð.
  Ákveðinn hátíðleiki er jafnan yfir Nýársmótum ÍF þar sem þangað er boðið heiðursgestum til að afhenda verðlaun, og keppendur marsera inn undir lúðrablæstri með heiðursvörð skáta.  Að þessu sinni var það Ögmundur Jónasson Innanríkisráðherra sem heiðraði mótið með nærveru sinni og veitti verðlaun og þátttökuviðurkenningar.  Skólahljómsveit Kópavogs lék lög við upphaf og setningu mótsins og skátar frá Skátafélaginu Kópar í Kópavogi stóð heiðursvörð um samkomuna.

Úrslit stig             Úrslit tímar

Myndir



Kolbrún Alda Stefánsdóttir handhafi Sjómannabikarsins 2012



Ólafur Þórarinsson þjálfari og Katrín Kristjánsdóttir nýliði í sundliði Fjarðar að loknum góðum spretti.

Name (required)

Email (required)

Website

CAPTCHA image
Enter the code shown above in the box below

Næst á dagskrá Minimize
Æfingatöflur Minimize

Æfingatafla 2011 - 2012

 

Sund eldri hópur Sund milli hópur Sund yngri hópur Boccia
Mánudagur Ásvallalaug
kl. 17:00-19:00
Ásvallalaug
kl. 17:00-18:30
Ásvallalaug 
kl. 17:00-18:30
 
Þriðjudagur Ásvallalaug
kl. 17:00-19:00
     
Miðvikudagur Ásvallalaug
kl. 17:00-19:00
Ásvallalaug
kl. 17:00 - 18:30
Ásvallalaug
kl. 17:00-18:30
Víðistaðaskóla
kl. 18:30-20:00
Fimmtudagur Ásvallalaug
kl. 17:00-19:00
     
Föstudagur Ásvallalaug
kl. 17:00-19:00
Ásvallalvaug
kl. 17:00 - 18:30 
Ásvallalaug
kl. 17:00-18:30
 
Laugardagur Ásvallalaug
kl. 10:00-12:00
     
Þjálfarar Helena Ingimundardóttir Hafdís Sigurðardóttir  Ólafur Þórarinsson  

Sýnum góða ástundun og sannan íþróttaanda.

  
Innskráning Nýskrá
Mynd augnabliksins Minimize
HeimsmeistaramótLiberec2005-188
Arena
Leyfilegur sundfatnaður skv. reglum Fina Minimize
.

Um áramótin 2009-2010 tóku í gildi reglur frá alþjóða sundsambandinu sem tilgreina hvaða sundfatnaður er leyfilegur á mótum.  Við viljum benda sundmönnum og aðstandendum að kynna sér þessar reglur þar sem þær gilda einnig um okkar sundfólk.

Reglugerð Fina

Listi yfir samþykkt sundföt á vef Fina

 
Styrktaraðilar Minimize
 

RioTintoAlcan.JPG 

Alcan á Íslandi styður

barna- og unglingastarf

Fjarðar

 
 1x2Fjordur.bmp
DotNetNuke® is copyright 2002-2012 by DotNetNuke Corporation