Venjulegt letur Stórt letur Mjög stórt letur
.

Nýjustu fréttir Minimize
16. maí 2012
Vegleg gjöf í tilefni 90ára afmælis
Vegleg gjöf í tilefni 90ára afmælis Þann 11. apríl síðastliðinn varð heiðurskonan Hólmfr&iacu...
3. maí 2012
Skemmtileg tilbreyting á sundæfingu
Skemmtileg tilbreyting á sundæfingu Krakkarnir í elsta og milli sundhópunum breyttu aðeins til og slepptu æfingu...
2. maí 2012
Arena lagersala
Arena lagersala Fimmtudaginn, 03. maí 2012 verður haldin lagersala á Arena sýnishornum...
Tenglar Minimize
Fréttir Minimize

Fréttir

18. febrúar 2012
Fríður hópur í víking til Malmö
Fríður hópur í víking til Malmö
Við fyrsta hanagal fimmtudaginn 9. febrúar var hópur 12 sundmanna mættur ásamt fararstjóra og foreldrum á Leifsstöð, á leið í flug til Kaupmannahafnar og þaðan með lest til Malmö í Svíþjóð til að taka þátt í hinum árlegu Malmö open leikum.  Ferðalagið gekk algjörlega áfallalaust og allir búnir að skrá sig inn á hótel og skola af sér ferðarykið fljótlega uppúr hádegi.  Korteri seinna voru allar mömmurnar mættar í H&M verslunina handan við götuna til að gera góð kaup.  Flestir reyndu að fara snemma í bælið þennan fyrsta dag til að safna orku fyrir átök helgarinnar.  
   Fyrstu kynni krakkanna af lauginni og keppnisaðstæðum voru svo seinnipart föstudags þegar þau tóku eina létta æfingu.  En áður en að því kom fóru allar mömmurnar nokkra hringi í H&M fyrripart föstudags. 
  Laugardagurinn var svo tekinn snemma.  Mætt út í laug um kl. 7:30 og tekin upphitun fyrir keppni sem hófst kl. 9:00.  Öllum deginum var svo eytt annaðhvort ofaní lauginni eða á laugarbakkanum, við keppni eða hvatningar.  Og þeir síðustu voru að yfirgefa lauginu um kl. 18:00 seinnipart laugardags.  Allra hörðustu mömmurnar skruppu svo aðeins í H&M um kvöldið áður en allir fóru í sameiginlegan kvöldverð á hótelinu og snemma í bólið.
  Sunnudagurinn byrjaði eins og laugardagurinn, eldsnemma.  Mótið byrjaði kl. 9 en var lokið rétt um hádegi sem gaf mömmunum nægan tíma til að heimsækja H&M það sem eftir lifði dags.  Hópurinn fór svo saman í kvöldverð á ítalskan veitingastað, og framhaldi af því að spila keilu fram eftir kvöldi, enda engin sundkeppni daginn eftir og hægt að sofa frameftir.  Flestir notuðu tækifærið á mánudeginum til að sofa frameftir, ekkert sérstakt um að vera fyrr en um kl. 20 þegar flugvélin átti að fara í loftið frá Kastrup.  Einhverjir brugðu undir sig betri fætinum eftir morgunverð og héldu til höfuðstaðar Danmerkur í heimsókn í dýragarðinn, á meðan að mömmurnar fóru síðasta hringinn í H&M.

Úrslit

Myndir



Ási vann til bronsverðlauna með boðsundssveit Fjarðar



Elín sópaði að sér gullpeningum



Vaka kom heim með 2 gullpeninga og eitt silfur.

Name (required)

Email (required)

Website

CAPTCHA image
Enter the code shown above in the box below

Næst á dagskrá Minimize
Æfingatöflur Minimize

Æfingatafla 2011 - 2012

 

Sund eldri hópur Sund milli hópur Sund yngri hópur Boccia
Mánudagur Ásvallalaug
kl. 17:00-19:00
Ásvallalaug
kl. 17:00-18:30
Ásvallalaug 
kl. 17:00-18:30
 
Þriðjudagur Ásvallalaug
kl. 17:00-19:00
     
Miðvikudagur Ásvallalaug
kl. 17:00-19:00
Ásvallalaug
kl. 17:00 - 18:30
Ásvallalaug
kl. 17:00-18:30
Víðistaðaskóla
kl. 18:30-20:00
Fimmtudagur Ásvallalaug
kl. 17:00-19:00
     
Föstudagur Ásvallalaug
kl. 17:00-19:00
Ásvallalvaug
kl. 17:00 - 18:30 
Ásvallalaug
kl. 17:00-18:30
 
Laugardagur Ásvallalaug
kl. 10:00-12:00
     
Þjálfarar Helena Ingimundardóttir Hafdís Sigurðardóttir  Ólafur Þórarinsson  

Sýnum góða ástundun og sannan íþróttaanda.

  
Innskráning Nýskrá
Mynd augnabliksins Minimize
ÍþróttakonaÍF2007-098
Arena
Leyfilegur sundfatnaður skv. reglum Fina Minimize
.

Um áramótin 2009-2010 tóku í gildi reglur frá alþjóða sundsambandinu sem tilgreina hvaða sundfatnaður er leyfilegur á mótum.  Við viljum benda sundmönnum og aðstandendum að kynna sér þessar reglur þar sem þær gilda einnig um okkar sundfólk.

Uppfært febrúar 2012.

Reglugerð IPC

Listi yfir samþykkt sundföt á vef IPC

 
Styrktaraðilar Minimize
 

RioTintoAlcan.JPG 

Alcan á Íslandi styður

barna- og unglingastarf

Fjarðar

 
 1x2Fjordur.bmp
DotNetNuke® is copyright 2002-2012 by DotNetNuke Corporation